14.11.2008 | 00:59
Viðtal við hann hér >
http://www.youtube.com/watch?v=4UwF6NTHC-I
http://www.youtube.com/watch?v=4srWifCO2d4
Þarna var hann í viðtali.
Á ekki orð yfir þennann mann. Ætli þetta sé ekki þessi týpíski Karlmaður.
Finnst að það ætti að leyfa honum að prufa að vinna eðlilega vinnu kannski um stund og sjá svo til . . .
Þessir menn eru búnir að komast upp með að spila póker og reykja vindla með peningana okkar of lengi.
VR flýtir stjórnarkjöri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.11.2008 | 08:42
Hverjir eru stórir kallar núna ?
Við vorum vön, allavega mörg okkar að lýta Pólverja hornauga. Ég heyrði oft setningum fleygt á borð við , "Ekkert nema Pólverjar að vinna þarna" , "Það er gott að útlendingar geti tekið að sér það sem enginn Íslendingur fæst til að vinna". Alltaf hugaði ég, vá það er eitthvað rangt við þetta. Við erum hvergi betri en landar okkar þó svo að einhver ykkar hafið hugsað svona á meðan að þið borguðuð af bílaláninu af bílnum sem að þið áttuð ekki krónu í. Ég hef unnið lengi við afgreiðslu og oft séð um að elda mat ofaní þreytta og duglega verkamenn og oftar en ekki eru þeir Pólverjar. Ég hef séð flottu íslendingana koma inn í fínu fötunum og brosa út í annað, glottandi í átt að þeim með hamingjuglampa í augum sem að aðeins Landrovereigandi getur framkallað.
-
Íslendingar , hættum að vera svona ógeðslega stolt. Við erum lítil þjóð og höfum engan veginn efni á þessu grobbi. Við skitum á okkur gerðum okkur að fiflum fyrir framan allan heiminn og nú er bara eins gott að við höldum okkur á mottunni. Svo eru þeir á ofurlaunum sem að komnir eru í stjórnir við að þrífa upp slugsið af veggjunum eftir þetta partystand.
Heyra tal í útvarpi og sjónvarpi "Heyrðu já eftir 2 ár þá ætti fjármálamarkaðurinn að vera kominn í gott horf". Hvað gerist þá ? , stígur forsetinn upp í næstu lausu einkaþotu þá líka ?
Við erum búinn að vera að braska í þessum fjármálaheimi. Held að við ættum að halda okkur við sjósókn og landbúnað í bili.
Yfir og út.
Thelma sem er að borða súkkulaði í kreppunni.
Pólverjar munu lána Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2008 | 10:03
Já Geir haltu áfram
Ekki lengur hætta á þjóðargjaldþroti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.9.2008 | 09:29
Ingibjörg Sólrún Hetjan okkar.
Ingibjörg Sólrún gekkst undir aðgerð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.9.2008 | 01:29
Það eru 2 brjóst
Vill kærastann aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2008 | 10:15
Hér með staðfesti ég . . .
Herbert Guðmundsson . .
Maðurinn er dýrlingur.
Lítið atvik sem að ég varð einusinni vitni af . .
Þegar að hann kom inn í sjoppu úti á landi þá sé ég þarf sem að hann talar við afgreiðslumanninn eins og hann sé búinn að þekkja hann í mörg ár.
Hann er maður fólksins , samdi frábært lag , þorir að vera hann sjálfur og hefur marga kosti í sínu fari.
En aftur af sjoppuatvikinu . . Herbert er að spjalla eins og honum einum er lagið en ég veit ekki fyrr en að ég sé Herbert draga upp geisladisk úr vasa sínum og réttir afgreiðslumanninum að gjöf. Herbert borgar fyrir sínar veitingar og þakkar fyrir sig og eftir stendur afgreiðslumaðurinn með bros á vör. Ef að til er maður sem að er eigingjarn og nýskur þá væru það allir aðrir en Herbert.
Hann skal ekki þurfa að borga svo mikið sem krónu í þessu þakmáli þar sem að hann með sinni forsjálni lagaði þakið í tæka tíð ólíkt öðrum.
Can't Walk Away
Can't Walk Away
Can't Walk Away
Can't Walk Away
Neitar að borga þak nágrannans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2008 | 10:03
Hér er aumingjans maðurinn . . .
Hún er á aðgangi á Flickr hjá notanda sem að kallar sig Cli1000 en hann hefur núna sagt upp aðganginum.
Fremur undarlegt.
Þar er mynd af árásarmanninum að miða byssu og myndin er mjög skýr og tekin nálægt.
Annars þá skulum við reyna að hugsa blíðlega til allra þeirra fjölskyldna sem að nú eru í sárum yfir undangengnum atburðum og skulum vona að Finnland endurskoði sína stefnu í vopnalögum.
Ekki bara lögin heldur þarf líka fræðslu og aðlögunaraðgerðir svo að fólk hunsi ekki lögin.
Ódæðismaðurinn hringdi í vin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2008 | 12:01
Ætli ég mætti spyrja . . .
Er það bara ég að ruglast eða er ekkert tekið fram hvers vegna ? :D
Ekki það að framtíð mín sem nöldrari velti á þessu en maður spyr sig.
Mér sem að finnst svo gaman að taka næturrúnta þarna . .
ég hlýt að meiga taka mér hljólreiðatúr ;)
Annars þá er allt gott að frétta af kjellunni og ég bara er hérna búin að vera heima að gera íbúðina fína og hún er tilbúin fyrir hvað sem er.
Langar að halda party . . :)
En ég er farin að bursta og svo ætla ég í bíó í kvöld með Jóa töffara.
Reykjanesbraut lokuð í nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.9.2008 | 02:31
Það er ekki að spyrja að viðbjóðinum.
Þetta eru menn sem að hafa villst af leið.
Augljóslega búnir að taka svo mörg hliðarspor í trúnni að ég efast um að rétt sé að bendla þá við trúarbrögð.
http://www.huffingtonpost.com/2008/09/20/arkansas-church-compound_n_128005.html?page=2&show_comment_id=15929549#comment_15929549
Þarna er sama frétt í fleiri orðum.
Sértrúarsöfnuður grunaður um barnaníð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.9.2008 | 02:13
Takk fyrir komuna sætulíusar
Ég var að skoða bloggið á mbl.is eftir ábendingu frá bloggvinkonu minni og sá að bloggið mitt er þó nokkuð heimsótt.
Ég hugsaði . . mitt blogg mikið heimsótt , hvers vegna ? , ég er glöð að sjá það . . En opinber dagbókarskrif eru í raun eins og hver annar fjölmiðill , nema það að honum er ekki dreyft jafn kerfisbundið :)
Ég stjórna ekki auglýsingum heldur kem aðeins á framfæri skoðunum eða vangaveltum og vona að ykkur líki það vel . .
Núna annars þá missti ég af dagvaktinni í kvöld og er í rusli yfir því. Langaði svo að sjá þetta en ég eins og með allt annað tókst að missa af þættinum þó að ég væri heima og sjónvarpið innan 3km radíusar. Veit ekki hvað fór úrskeiðis. Kannski voru það Bingókúlurnar sem að ég var að stelast í sem að rugluðu mig í ríminu og drógu þrótt úr þeim heilasellum sem að ég var búin að láta vita að ættu að minna mig á dagvaktina :D
Annars þá er hún vonandi endursýnd.
Hvað um það . . lífið snýst ekki um að horfa á Dagvaktina og borða bingókúlur. Ég hugsa stundum um það að á meðan að ég er að gera eitt, með hægri hendi, og reyna að slökkva á lampanum með þeirri vinstri þá er til fólk sem að getur hvorugt
Við sem höfum heilsuna gerum hlutina eins og ekkert sé. Leggjum á borð , förum framúr og háttum okkur sjálf en það er fólk sem að getur ekki framkvæmt þessa hluti. Síðan að ég horfði á þáttinn um mænuskaða
Mænan er ráðgáta, þá hefur það verið mér hugleikið allir þessi hlutir. Hlutir sem að ég gæti ekki gert í lífinu og það fær mig til að vera þakklát fyrir þá heilsu sem ég hef. En um leið þá vorkenni ég þeim innilega sem að þjást af mænuskaða eða öðrum kvillum.
Íslendingar voru duglegir að styrkja málefnið. Þeir sem hafa áhuga á að styrkja geta gert það.
311 - 26 - 81030 Kennitala: 411007-1030
Um bloggið
Heimur Thelmu
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar